Tröð fasteignasasla kynnir veitingahús með löngu vínveitingaleyfi til sölu staðsett ofarlega á Klapparstíg í hjarta Reykjvíkur:Erum með veitingahúsnæði til leigu og afhendingar strax í þessu vel þekkta húsnæði á besta stað í hjarta Reykjavíkur. Greiða þarf lyklagjald til þess að taka húsnæðið á leigu, sem greiðir fyrir öll tæki og tól á staðnum, en í húsinu hefur verið veitingastaður með með vínveitingaleyfi III, þar sem leyfður opnunartími er til 4:30 í hluta húsnæðisins. Hámarks gestafjöldi m.v. síðasta leyfi á staðnum var 105 manns. Skráð stærð hússiins er 239m², en óskráð er um 90m² staðsettir í veitingatjaldi og útihúsi, sem nýtast hvoru tveggja að fullu með veitingastaðnum. Alls er því um að ræða um 330m², sem skiptast í 266m² veitingahús (176m² + 90m²) á 2 hæðum, ásamt 64m² fjögurra herbergja íbúð á efri hæð, sem er í útleigu og kemur leiga hennar til lækkunar á uppgefnu heildarleiguverði. Skipulag húsnæðisins gerir það auðvelt að reka tvo eða jafnvel fleiri veitingastaði undir sama þaki og býður þannig upp á að tveir eða fleiri veitingamenn taki sig saman. Á sama hátt veitir þetta einum aðila sem vill samþætta tvo staði á einum stað möguleika á að gera það með hentugum hætti.
Áhugasamir hafið samband við Guðlaug s. 896-0747 og fáið frekari upplýsingar, eða til þess að fá að skoða húsnæðið. Tröd.is ............................... slóðin að réttu eigninni.