Tröð og Leigulistinn s. 511-2900 kynna gott skrifstofuhúsnæði til leigu í Lágmúla með glæsilegu útsýni yfir borgina:Vorum að fá mjög snyrtilegt136m² skrifstofuhúsnæði til leigu í Lágmúlanum sem er laust til afhendingar fjlótlega með frábæru útsýni til vesturs og norðurs. Húsnæðið skiptist í 3 misstór lokuð skrifstofuherbergi, rúmgóða móttöku og samkomulsal sem er einnig eldhús með nýlegri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél og ískáp. Skipulag rýmisins býður upp á að búa til 2 viðbótar herbergi, þannig að þau verði alls 5 talsins. Parket á gólfum. Flúrósent lýsing í loftum. Tölvulagnir í stokkum. Dyrasími. Litað gler í gluggum. Snyrtingar og lyfta í sameign. Áhugasamir hafið samband við sölumenn okkar og pantið skoðun.
Tröð ............. slóðina að réttu eigninni.