Tröð og Leigulistinn s. 511-2900 kynna gott skrifstofuhúsnæði að Skógarhlíð ti leigu: Gott 480 m² skrifstofuhúsnæði á efri jarðhæð í smekklegu húsi við Skógarhlíð í Reykjavík. Húsnæðið er bæði í opnum rýmum og stúkað niður í herbergi með léttum milliveggjum sem eru auðhreyfanlegir og gefa þannig möguleika á sveigjanleika í endanlegu skipulagi húsnæðisins. Sér snyrtingar og kaffistofa innan rýmisins. Gengið er inn í rýmið beint af efri jarðhæð úr sameign. Gólf eru með teppaflísum, loft niðurtekin með innfelldri lýsingu og loftræstiingu. Rafmagns-síma og tölvulagnir í stokkum. Húsnæðið er afhent nýmálað. Á neðri jarðhæð er mötuneyti og fundarsalir fyrir stærri fundi. Aðkoma að 1. og 2.hæð er beint af bílastæðum þar sem húsið er í hallandi landslagi. Lokuð bílageymsla í kjallara, ásamt búningsaðstðu með sturtum fyrir bæði kynin.
Teikningar og nánari upplýsingar veita sölumenn okkar í s. 511-2900.trod.is ..................... slóðin að réttu eigninni.