Tröð og Leigulistinn s. 511-2900 kynna gott skrifstofuhúsnæði að Höfðabakka 9 í Reykjavík til leigu:Erum með 348m² skrifstofuhúsnæði á 2. hæð að Höfðabakka 9 í Reykjavík. Rýmið skiptist í móttökusvæði, tvö björt opin vinnurými, fundarherbergi og eina skrifstofu/fundarherbergi. Góð kaffistofa með miklu skápaplássi, eyju og innbyggðri uppþvottavél. Fastur bekkur. Tvö salerni, sturta er inni á öðru þeirra. Aflokuð ræstiaðstaða.
Sérinngangur er í rýmið og veglegur stigi upp á aðra hæð. Bjart og virkilega skemmtilega hannað rými með samfelldum gluggum á þrjár hliðar. Hljóðdempandi teppi og harðparket á gólfum. Hægt að aðlagað rýmið að þörfum nýs langtímaleigutaka.
Fjölbreytt verslun og þjónusta í á svæðinu. Stórt bílastæði er við húsið og greiðfært er að því gegnum helstu samgönguæðar og almenningssamgöngur.
trod.is ................... slóðin að réttu eigninni