Klapparstígur 38, 101 Reykjavík (Miðbær)
Tilboð
Atvinnuhús/ Verslunarhúsnæði
3 herb.
239 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1901
Brunabótamat
72.400.000
Fasteignamat
40.700.000

Tröð fasteignasasla kynnir veitingahús með löngu vínveitingaleyfi til sölu staðsett ofarlega á Klapparstíg í hjarta Reykjvíkur:

Erum með veitingahúsnæði til leigu og afhendingar strax í þessu vel þekkta húsnæði á besta stað í hjarta Reykjavíkur.  Í húsinu hefur verið veitingastaður með með vínveitingaleyfi III, þar sem leyfður opnunartími er til 4:30 í hluta húsnæðisins. Hámarks gestafjöldi m.v. síðasta leyfi á staðnum var 105 manns.  Skráð stærð hússiins er 239m², en óskráð er um 90m² staðsettir í veitingatjaldi og útihúsi, sem nýtast hvoru tveggja að fullu með veitingastaðnum.  Alls er því um að ræða um 330m², sem skiptast í 266m² veitingahús (176m² + 90m²) á 2 hæðum, ásamt 64m² fjögurra herbergja íbúð á efri hæð, sem er í útleigu og kemur leiga hennar til lækkunar á uppgefnu heildarleiguverði.  Skipulag húsnæðisins gerir það auðvelt að reka tvo eða jafnvel fleiri veitingastaði undir sama þaki og býður þannig upp á að tveir eða fleiri veitingamenn taki sig saman.  Á sama hátt veitir þetta einum aðila sem vill samþætta tvo staði á einum stað möguleika á að gera það með hentugum hætti. Gott tækifæri sem veitir aðgang gegn gjaldi að miðbænum, að fullbúnu atvinnueldhúsi, öllum húsbúnaði ásamt tækjum og tólum, þ.á.m. eru bjórdælur og lagnir til staðar ásamt stórum kæli.  Áhugasamir hafið samband við Guðlaug s. 896-0747 og fáið frekari upplýsingar, eða til þess að fá að skoða húsnæðið.  

Trod.is   ............................... slóðin að réttu eigninni.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.