Verðskrá (úrdráttur)

1.0 ALMENNT UM ÞÓKNUN

Þóknunarfjárhæðir í gjaldskránni eru tilgreindar án virðisaukaskatts sem er 24,0% til viðbótar þóknun samkvæmt gjaldskránni.

 

2.0 SALA FASTEIGNA

2.1 Sala atvinnuhúsnæðis.

a.  Söluþóknun af eign í einkasölu er 1,95% af umsömdu söluverði, þó aldrei lægra en kr. 400.000,-

b.  Söluþóknun af eign í almennri sölu er 2,3% af umsömdu söluverði, þó aldrei lægra en kr.400.000,-

c.  Söluþóknun af sölu félaga og atvinnufyrirtækja 5% af heildarsöluverði, þ.m.t. birgðum.


2.2 Leiga atvinnuhúsnæðis.

a. Þóknun fyrir útleigu á atvinnuhúsnæði jafngildir 1,0 til 2,0 mánaðar húsaleigu fyrir það húsnæðið sem miðlunin hefur milligöngu um og finnur leigjanda að allt eftir lengd leigusamnings, en þó ekki lægri er kr. 85.000.- (herb. undanskilin). Þóknunin breytist sem hér segir;

i. Leigusamningar 0-4 ár; greiðist 1,0. mánaðar leiga + vsk. í þóknun 
ii. Leigusamningar 5-9 ár; greiðist 1,5. mánaðar leiga + vsk. í þóknun 
iii. Leigusamningar 10 ár eða lengur; greiðist 2,0. mánaðar leiga + vsk. í þóknun

 

b. Þóknun fyrir eign i einkaleigu jafngildir 90% af 1-2 mánaðar leigugjaldi, þó ekki lægra en kr. 85.000.- + vsk.

c.  Þóknun fyrir íbúðarhúsnæði sjá verðskrá Leigulistans ehf.: http://leigulistinn.is/verdskrd

 

 

3.0 SKOÐUN OG MAT FASTEIGNAR.

Sé atvinnuhúsnæði ekki sett í sölumeðferð en eign skoðuð og verðmetin reiknast skoðun og mat á húsnæðinu greiðast að lágmarki kr. 85.000.- auk vsk., en fyrir stærri eignir miðast gjald fyrir verðmat við allt að 0,1% af brunabótamati eignarinnar eða matsverði hennar, eftir því hvor talan er lægri, eða skv. tímataxta. Leigist atvinnuhúsnæði innan 15 daga frá því að eignin er tekin í leigumeðferð fyrir tilstuðlan annars aðila en Tröð ehf., innheimtist skoðunargjald kr. 30.000.- + vsk.

 

4.0 ÝMIS SKJALAGERÐ OG RÁÐGJÖF.

Þóknun fyrir munnlega ráðgjöf og leiðbeiningar er samkvæmt tímagjaldi.

 

5.0 ÝMIS ÁKVÆÐI.

5.1 Viðskiptamaður greiðir lágmarks gjald kr. 15.000.- m. vsk.vegna öflunar gagna um eignir og aðila, svo sem vegna veðbókavottorða, vottorð úr hlutafélagaskrá, ljósrit teikninga og ýmissa skjala. 


5.2 Kostnað við gerð og birtingu auglýsinga skal viðskiptamaður greiða samkvæmt gjaldskrá viðkomandi auglýsingamiðils hverju sinni. Fyrir myndatöku á eign greiðist kr. 12.500,- m.vsk.

6.0 TÍMAGJALD.

Tímagjald er kr. 20.000.- fyrir löggiltan fasteignasala, en almennt tímagjald er kr. 15.000,- 

 

7.0 AKSTURSKOSTNAÐUR OG DAGPENINGAR.

Heimilt er að reikna kostnað við akstur og ferðir með hliðsjón af reglum fjármálaráðuneytisins um aksturskostnað og dagpeninga.