Tröð og Leigulistinn s. 511-2900 kynna gott rými á Lynghálsi til leigu og afhendingar strax:Vorum að fá 230m² skrifstofu- og þjónusturými til leigu á efri jarðhæð að Lynghálsi með fallegu útsýni yfir borgina til norðurs. Gengið er beint inn í rýmið frá bílaplani, en það er að mestu í opnu rými með vínilparketi á gólfum. Stórt fundarherbergi er stúkað af með glerveggjum, auk kaffistofu og snyrtingar með sturtu. Rýmið er með nýlegum innréttingum. Niðurtekin loft með innfelldri lýsingu. Auðvelt að bæta við herbergjum ef á þarf að halda. Getur hentað sem skrifstofu-, þjónustu- eða heildverslunarhúsnæði.
Áhugasamir hafið samband við sölumenn okkar í s. 511-2900 og pantið skoðun.
Tröð.is ......................... slóðin að réttu eigninni.